Koma svo...!
Daglegt
10.10.2007 10:38:24 / rakels

20 vikur and counting

Á morgun fer ég yfir til Luxembourg og verð fram á þriðjudag hjá mínum heittelskaða. Þar á eftir kem ég heim til Íslands og verð fram til mánudagsins 22. október. Það verður stuð. Hitta á allt liðið eftir að ég varð frú.

 Kúlan stækkar og stækkar og kvöldunum er yfirleitt varið í það að horfa á magann á mér og það sem ég get ímyndað mér, krílið í loftköstum inni í leginu á mér. Þetta er alien-esque dæmi og frekar fyndið. Fór í 20 vikna sónar í síðustu viku og svo skoðun hjá ljósmóður í gær og allt lítur þetta vel út. Það er ekki hægt að biðja um meira.

Það er mikið að gera hjá Brynjari þessa dagana en náði hann þó að koma heim um síðustu helgi, þá vorum við ekki búin að sjást í þrjár vikur. Þá er hámarkinu náð. Þrjár vikur er max. En það var yndislegt veður hérna í Kaupmannahöfn og við röltum hér um borgina í blíðskaparveðri og höfðum það gott saman. Svo talaði Brynjar við kúluna og hún varð alveg crazy og sparkaði og sparkaði. Ég vil frekar meina það að kúlunni hafði fundist hressandi að heyra í föður sínum en það að vera pissed og miða á höfuðið á honum með litla fætinum sínum. Maður veit svo sem ekki.

En það er alveg á hreinu að þetta verður hressbolti með meiru, heldur uppi stuði í partýum og veldur foreldrum sínum ama með því að koma of seint heim á kvöldin...

Þetta kemur allt saman í ljós.

Rakel

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.09.2007 19:29:12 / rakels

19 vikur og nokkrar brúðkaupsmyndir

19 vikur

Komin á Hótel Sögu þar sem fjölskylda og vinir biðu

Rósablöð... Við þurftum víst engin hrísgrjón!

Hjón

Ég að fara að kasta vendinum...

Brynjar að ná í sokkabandið...

Fyrst dans okkar sem hjón


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 09:46:33 / rakels

tøffffff...

Thid erud bara alltof sætar. Takk fyrir fallegar athugasemdir vid sídustu færslu.

Svo ég svari nú theim spurningum sem lágu thar fyrir ad thá kem ég líklega til Íslands í viku 42 eda 15/16 október og verd í tæplega viku. Thá er ég nú bara hálfnud med medgønguna eda rúmlega thad. Hef hugsad mér ad trútsa fjølskyldu og vini, fara á Airwaves til ad sjá Védísi mína en hún er einmitt ad gefa út pløtu sem vonandi verdur komin í verslanir 27. september (pimp) og heitir "A beautiful life - recovery project". Ég mæli eindregid med pløtunni og adallega thá útaf thví ad ég syng bakraddir í einu lagi og klappa høndum saman í ødru;)

Já, Heida Heida! Er heima allan september thannig ad vid verdum endilega ad hittast í kaffibolla! Vei! Tel: +45 21 25 32 53

 Thad er annars búid ad vera mikid ad gera sídustu vikuna í skólanum og hittist ad sjálfsøgdu thannig á ad eiginmadurinn var heima í vikufríi. Hann fór svo í gær til Luxembourg og var ad byrja í nýju vinnunni í dag. Loksins komid ad thessu. Ég verd nú ad segja ad ég er meira en lítid stolt af honum thar sem ad thessi process er búinn ad vera langur og taka mikid á. En Brynjar er tøffari og klárar allt sem hann gerir upp á hundrad! (Kommon, hann er búinn ad negla mig í hjónaband og gera mig ófríska á innan vid einu og hálfu ári) Tøffari!

En ég er ekki ein thó hann sé í burtu thví ég er eigi kona einsømul og geri mikid af thví ad tala vid hoppubolluna. Thad er gaman ad segja frá thví ad á thridjudaginn í sídustu viku fann ég fyrir thví ad thad var eitthvad ad hreyfa sig og Brynjar var svo spenntur ad hann setti høndina á magann á mér. Thá gerdist thad í fyrsta skipti ad bollan sparkadi! Thad var geggjad! Sídan thá høfum vid legid saman á kvøldin og fundid krílid sparka út í eitt. Thetta er pínu fríkad, ad finna eitthvad hreyfast innra med sér, en á sama tíma yndislegra en allt. Thetta verdur einhver hressbolti, thetta barn. Vonum bara ad thad geri sér lítid fyrir og hoppi út thegar thad kemur ad thví og láti módur sína ekki kveljast aaallt of mikid;)

Annars gengur eitthvad illa ad setja inn myndir... Tølvan mín frýs alltaf thegar ég er komin ad thví ad klára ad setja inn myndir, thannig ad ég tharf ad endurræsa hana og ves! Ég held ad thad sé kominn tími á thad ad ég fari ad endurnýja tølvubúnad (hint hint á Fransmann).

En ég heimta saumaklút thegar ég kem heim og allavega eitt partý, fyrir bolluna, ekki mig! Hún hoppar vid talib kwali og de la soul og svo líka vid justin timberlake thegar sá gállinn er á henni. Ég hef eilítid verid ad syngja "Lime in the coconut" fyrir hana en hún virdist ekki fatta djókid. Allavega ekki ennthá! Æi, greyid hún er nýbyrjud ad heyra. Gef henni séns!

Thangad til sídar...

 Rakel

 

Nádi hérna tveimur myndum inn af mér komin 17 vikur á leid.

Komin 17 vikur á leid

 

17 vikur og ber magi

"

 


» 14 hafa sagt sína skoðun

07.09.2007 16:29:31 / rakels

Brúðkaup etc...

 

Það er langt síðan ég hef skrifað og margt hefur gerst síðan þá. Við erum bæði búin að svífa um á bleiku skýi eftir atburðina síðastliðnu vikna og mánuða en líka haft alveg svakalega mikið að gera. Það er tími til kominn á að endurvekja þessa síðu ef ég á ekki að leggja bara niður.

 Við giftum okkur semsagt föstudaginn þann 27.júlí og hefði dagurinn ekki getað verið dásamlegri að neinu leyti. Athöfnin var svo innileg og falleg. Ég gat lítið haldið aftur af mér enda bölvaður kettlingur. Var byrjuð að tárast þegar ég gekk inn kirkjugólfið með föður mínum. Það er ólýsanleg tilfinning að horfa á manninn sem situr á móti þér í kirkjunni og þú veist að bráðum verðið þið orðin hjón. Það er svo fallegt og rómantískt og ólýsanlegt. Það gerir það ekki auðveldara að halda aftur af tárunum þegar ein af manns bestu vinkonum er að syngja, lögin sem skipta ykkur svo miklu máli.

Veislan var svo frábær og við sáum hvað við eigum frábæra fjölskyldur og vini. Pabbi og mamma lögðu svo hart að sér við að gera þetta ógleymanlegt og við erum alveg ofsalega þakklát þeim fyrir það. Nokkur tár fengu að falla þar líka þar sem faðir minn var búinn að búa til æðislegasta myndashow sem ég hef séð með myndum af mér frá fæðingu og upp að brúpkaupi, með tónlist og herlegheitum. Mamma var búin að láta útbúa svo fallegt ljóð handa mér. Ég var með vot augu þann tíma sem hún las það upp í veislunni. Mamma hans Brynjars hélt svo fallega ræðu sem og Aníta, systir hans gerði. Einlægt og fallegt.

Og svo má ekki gleyma vinunum, sem bæði töluðu mjög fallega en gátu náttúrulega ekki setið á sér og birtu allan fjandann af manni uppi á tjaldi. Ég hef sjaldan hlegið jafnmikið!

Brúðkaupsnóttinni eyddum við svo í brúðarsvítunni á Hótel Sögu og áttum góðan dag daginn eftir með nánustu fjölskyldu og vinum þar sem við opnuðum pakka, drukkum kaffi og borðuðum snittur og kökur sem elskuleg móðir mín var búin að útbúa.

Brúðkaupsferðin var svo farin tveimur dögum síðar og eyddum við 12 dögum á eyjunni Mauritíus í algeru dekri og afslöppun. Dásamlegt.

Hversdagsleikinn hefur tekið við að því leytinu til að ég er byrjuð aftur í skólanum og Brynjar aftur byrjaður að vinna. Hann á nú reyndar bara þrjá daga eftir hjá Air France þar sem hann er að færa sig yfir til Cargolux og byjar þar 17. september. En hversdagsleikinn er góður:) Það verður að segjast..

Á sama tíma og ég segi að ég gæti ekki verið hamingjusamari í hversdagsleikanum með mínum dásamlega eiginmanni er hægt að segja frá því að við eigum von á okkar fyrsta barni í byrjun næsta árs. Er komin 16 vikur á leið eða 4 mánuði og á krílið að koma 24. febrúar. Við köllum krílið hoppubolluna. Það hoppar, þó það sé lítið og er ég farin að finna fyrir því hreyfa sig og gera æfingar.

Set myndir inn á eftir. Myndirnar til vinstri á síðunni...

Ófríska eiginkona xxx.

 

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

25.04.2007 14:44:46 / rakels

Mjá.

Eins og fólk sér að þá hefur það ekki verið í forgangi að skrifa á síðuna mína.

Það er alltaf þetta flakk á manni og verða því svona skrif að víkja. Er semsagt heima á landi Ísa og búin að vera síðastliðnar tvær vikur eða þrjár. Er í verknámi og er að kenna litlum talíbönum. Maður hefði haldið að litlir brjálaðir krakkar væru nægileg getnaðarvörn til að halda manni frá þungunum og barneignum næstu fimm árin allavega en þetta fer eitthvað öfugt ofan í mig. Það er nokkrir þarna sem mig langar alveg að taka heim með mér og eiga og trútsa þau bara og gefa þeim að borða og hjálpa þeim að læra og svona. Klingi kling.

En já, komum frá Madrid til Íslands og vorum hér um páskana. Fór svo til London að hitta tilvonandi eiginmann og var í tæplega viku. Yyyyyyndislegt! Fékk smá klapp og trúts frá honum, fórum á leiksýningu með Billie Piper og gæjanum sem lék í "Love Actually" þar sem hann var sannfærður um að breskar konur væru fáránlega snobbaðar og þess vegna fengi hann ekki á broddinn og valdi hann því að fara til Wisconsin í Bandaríkjunum til að "get some". Leikritið var allavega svona farsi um disfunctional samband milli tveggja einstaklinga. Mjög vel leikið. Við fórum út að borða á Hakkasan, Asia de Cuba og Alounak sem er persneskur staður og einhver ítalskan sem einnig var mjög góður. Löbbuðum mikið og áttum góðan tíma saman. Kom til Íslands aftur í fyrradag og er brúðkaupsundirbúningur að smella. Þetta kemur allt á endanum... Enda bara þrír mánuðir í þetta. Ætla að hitta á tengdamóður mína í kvöld þar sem hún var að koma frá Perú úr þriggja vikna ferðalagi um rústir Inkanna, í Amazon skógi og NY. Get ekki beðið eftir að heyra og sjá myndir úr ferðalaginu.

Svo kemur Brynjar til Íslands á laugardaginn og ætlum við að klára svona það sem við getum áður en við förum aftur út.

Þangað til næst. R.

p.s. Takk fyrir að passa Kisa, elsku Sjana og Frikki. Hann er miður sín hérna kominn upp í Reyðarkvísl aftur. Glatað pleis;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.03.2007 16:39:56 / rakels

Gaman að þessu...

Í tilefni af 1. árs afmælis Brynka og Rokkarans er rétt að draga smá útdrátt frá síðasta ári og setja hér inn á þessar síðu. Ég held að það sé deginum ljósara að ég sé hálfgerður mongolíti... Þið lesið þetta bara.

Skrifað 2 mars 2006

“...Vill einhver byrja með þessari gellu hérna? Hún er einstaklega þrifin og kann að elda, röflar ekkert voðalega mikið og öll dýr og börn elska hana, ejú!Ástæðan fyrir volæði mínu er sú að ég keypti mér sjávarsalt í tilbúinni kvörn og ég GET EKKI OPNAÐ HANA!!! Og núna er ég alveg brjáluð (en á voðalega sætan og dömulegan hátt)! Ég verð að játa mig sigraða í þessum "einhleypa-leik" og það verður að viðurkennast að mig vantar karlmann hingað til að sinna svona störfum! Ég get ekki verið að standa í svona rugli þegar ég á að vera að einbeita mér að lærdómnum!

Hver býður sig fram?

Kisi Balboa.”

Skrifað 12 mars 2006.

“...sit á bókasafninu núna að undirbúa mig fyrir fund í fyrramálið með hópnum mínum sem ég er að gera verkefni með. Erfitt að undirbúa sig þegar maður fær fregnir af mönnum eins og Brynjari vini mínum sem er flugmaður hjá Air France, að hann hafi "skroppið" íKarabíska hafið í gær og komi heim á þriðjudaginn. Já, æi.. Hann var bara á ströndinni í dag með vinnufélaga sínum! Are you friggin kidding me, Green?

Ég sagði honum líka að ég væri alveg brjáluð, hann skyldi sko taka mig með næst! Hann féllst á það en ég veit svo sem ekki hvenær hann tekur upp á því næst að fara í óvænta ferð í Karabíska hafið.. Kannski ef ég giftist þessu rassgati þá aukast möguleikar mínir til muna... Pæling.”

Skrifað 20 mars 2006

“...Hildur, Steinunn og ektamenn eru í vinnslu og svo er ég búin að "sannfæra" einn góðan mann með. Það þurfti nú ekki mikið til að sannfæra hann reyndar. Hann var ansi tilkippilegur þegar hann heyrði listann og með það gefið að hann er tiltölulega nýkominn af tónleikum með Depeche Mode i Riga, þá var tónleikasvitinn eflaust ekki enn runninn af honum þegar hann samþykkti. Sorry, Brynjar minn. Þetta er búið og gert.”

Skrifað 22 mars 2006

“...Svo á ég reyndar eina góða tvífarasögu...

Ég var semsagt á Vegamótum nú rétt eftir jólin, á annan í jólum nánara tiltekið, og er þar með Hildi og Ástu minni. Við erum nokkuð þægar bara, að dansa undir tónum hans Dóra Dj, þegar ég sé andlit sem ég kannast við.. Maðurinn brosir reyndar eitthvað voðalega til mín og byrjar síðan að labba í áttina að mér... Kemur upp að mér og alveg: Hæ, elskan. Hvað segirðu? Mér fannst svona pínu skrítið að hann skyldi vera svona rosalega vinalegur við mig vegna þess að ég kannaðist bara við hann en ok.. Það kom reyndar eitthvað pínu skrítinn svipur á Hildi en ok aftur... Svo spyr hann hvort hann megi ekki bjóða mér upp á bjór og ég bara: uh, jújú! Mér fannst þetta enn og aftur eitthvað aðeins skringilegt en eins og ég segi kannski var hann bara vinalegur. Allavega, við erum komin upp að barnum og við fáum okkur bjór og svona og byrjum að spjalla...Hann: Já, hvað segirðu ekki allt gott? Ég: Jú jú, ég er bara ágætlega hress. Hann: Gott.. Og voruð þið ekki að kaupa ykkur íbúð? Ég: uh.... Ég var ekki að kaupa mér íbúð... Og hver erum VIÐ? Hann: uuuuhhhh........ skita skita skita skita....

ÉG var semsagt Hildur og VIÐ vorum ég og Dóri! Og þetta er einn af bestu vinum hans Dóra... Góði gæinn... Hann ætti kannski ekki að setja "Good at noticing stuff" á ferilsskránna sína. Pæling... Ég meina, hvernig er hægt að ruglast á mér og Hildi? Hvað er það? Jæja, góð saga...

Skrifað 30 mars 2006

“...Dagurinn í dag er "taka til og thrífa dagur". Er búin ad vera einstaklega non-Monicu-leg nú í nokkra daga og tharf ad fara ad taka á honum stóra mínum. Dagarnir eru búnir ad vera fljótir ad lída í thessu "lestrarfríi" sem ég er í og nálgast helgin.. Sem er gott. Ekki thad ad mér finnist leidinlegt ad lesa anatomíu, tví fer fjarri;) Gott ad fá smá tilbreytingu bara og gera eitthvad uppbyggilegt, eins og thad ad drekka raudvín france style... Ég er ekki med ofnæmi fyrir thví..”“...Svo fer nú ad slá í thessar vinkonur mínar og ég ekki ein um thad ad vera hálfthrítug. Árný er næst á listanum, svo kemur Hillan og smátt og smátt fer thetta ad gerast... Giftingar, mini-me´s, bleyjuthvottur og pakkinn. Thad er svona innbyrdis vedmál í gangi í vinahópnum og tel ég mig vera ansi gløgga thegar thad kemur ad thessum málum. Thad gerist eitthvad á næsta ári. Ég fer áreidanlega í eitt brúdkaup og eina skírn, thó ekki endilega hjá sama fólkinu. Thetta er madur ad sjá í spilunum, thessi tarotspil eru ekkert fugazzi, let me tell ´ya! Stelpur mínar, thid vitid hverjar thid erud! Koma svo, smá kraft í thetta hjá ykkur. “

Skrifað 4 apríl 2006

“...Ágætt orð til að lýsa síðastliðnum dögum... Konan er komin í vandræði, alveg hreint!

Skrifað 12 apríl 2006“...Maður er alltaf að þykjast vera töff og single, með svörin á reiðum höndum en þegar það kemur að því að þú ert loks skotinn í hjartastað þá verðurðu bara mjúkur, væminn  með viðvarandi og óþolandi glott á smettinu á þér sem fær aðra til að finna fyrir ónotum í maga! Og þig langar bara að skilja eftir allt draslið þitt heima hjá gæjanum. Og þig langar bara að hann skilji eftir raksápuna sína og tannburstann sinn eftir heima hjá þér og helst fá hann reglulega í heimsókn til að skilja eftir smá ilm á koddanum þínum og sænginni þinni þannig að þú þurfir ekki að sakna hans of mikið þessa sjö tíma sem þið eruð í sundur yfir daginn! 

Allar varnir niður, stríðið er tapað.. Þetta er búið!...”S

Skrifað 25 apríl 2006

“...Sumarid er komid í Danmørku. Yndislegir undanfarnir dagar med fransmanninnupp á arminn. Ekki slæmt thad enda ó svo fagur madur thar á ferd. Og ég er alveg búin ad missa kúlid og á ekki "rokkaranafnid" lengur skilid. Thad ættiad kalla mig "blúnduna" eda einhverju álíka kellinganafni.”

Skrifað 12 maí 2006

“...Sit her i ibud a 5. haed vid Rue St. Honore i Paris ad drekka hvitvin og hlusta a tonlist. Enntha bjart uti, solin skin enn og hiti um 25 stig. Buin ad eiga dasamlega viku her med Brynjari, romantikin allsradandi og erum vid buin ad labba um parisarborg, skoda mannlifid, tina blom, borda godan mat og drekka vin.”

Helvíti heilbrigt hjá mér. Þykjast vera einhver spámaður, vitandi ekki neitt. En svona er þetta. Erum á leið til Madrid í fyrramálið og förum þaðan til Seville til að heimsækja Sigurð spanjóla. Það verður rosa gaman. Förum svo til Íslands yfir páskana. Já og gaman að nefna það að það eru tæplega 4 mánuðir í brúðkaup! Damdamdamdam (þetta átti að vera svona brúðarmarsinn... ekki damn damn damn hahaha)

Védís, litla rassgatabolla er búin að vera í heimsókn hjá mér... Yyyyndislegt! Jón frændi og Biggi vinur hans eru hérna núna... Alltaf gestagangur hér og bara gaman að því.

Já og svo er gaman að nefna það að minn ástkæri var að fljúga sitt fyrsta flug sem flugstjóri áðan... Hann er 28 ára! Helvíti heilbrigt! Stolt af honum.

Heyri í ykkur.R.          


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.03.2007 10:37:23 / rakels

Total spild af tid...

Eda ekki.

Búin ad liggja í bókum undanfarna daga. Tími kominn á thad. Asta Bærings kom ásamt dansskvísum í sídustu viku til ad gera tískusýningu fyrir Oasis sem var ad opna nidri í bæ. Vid fórum sídan adeins út á lífid eftir thad. Blomsterberginn sá um dansinn:) Hitti Konna, Magnús, Brynjar frænda og Gamla thad kvøld en their voru ad heimsækja Gamla hérna í Køben thar sem hann er í námi. Rosalega gaman thad kvøld. Their nádu sídan ad plata mig út á laugardagskvøldid líka og spiludu samviskuleikinn á mig og thrýstingur var thad mikill ad ég átti ekki annarra kosta vøl. En var samt bara edrú og nádi gódu spjalli vid Konna gamla félaga og strákana. Skrítid hvernig fólk getur misst sambandid í einhvern tíma en er alltaf jafn gódir vinir í "bund og grund". Yndi.

Svo kom Brynjar minn heim í gærkvøldi, gladur ad sjá konuna (en ekki hvad?) Thetta er nú eitthvad farid ad breytast hjá okkur. Thad er ekki svo langt sídan ad honum blessudum var alltaf fagnad med jardarberjum og súkkuladi en í gærkvøldi henti ég hrísgrjónum í pott, steikti grænmetisbollur, sagdi "gerdu svo vel" og fór svo ad gera yoga! Gódur.

Vid vøknudum svo bara 06:15 í morgun og eldudum eiturhollan hafragraut og med thví. Ég dreif mig svo í skólann og tjallinn fór í ræktina. Og nú er ég svo svøng ad ég gæti étid hross thannig ad Brynki ætlar ad gefa mér hádegismat.

Nú ekki má gleyma komu Veddarans á fimmtudaginn, ég hlakka miiiikid til! Thad verdur eitthvad rooosalegt. Bidda aka. Krulli ætlar ad reyna ad ná ad skila verkefni sem hún tharf ad skila svo hún geti verid med okkur ad tralla!

Ok, ég tharf ad fara ad borda.

Rakel.


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.03.2007 15:22:30 / rakels

"Ungdomshuset bliver....!"

Åbenbart er min mor lige pludselig blevet en Dansker... Det var da mærkeligt! Yfirgæsarinn farinn ad rífa kjaft. Thá tharf madur ad gera eitthvad í sínum málum.

Saumaklútsskvísur!!! Ég skil ekki af hverju internet explorer "has encountered a problem and needs to close down" í hvert einasta skipti sem ég fer inn á síduna. Svo thegar ég reyni ad nota annad browser eins og Mozilla thá kemur ekki "log in" valmøguleikinn ekki upp! Búfrigginhú! Thad sem mig langadi til ad segja á Saumaklutnum er thad ad í fyrsta lagi fékk ég ad strjúka mallanum á Árnýju á laugardaginn og thad var mega sætt! Hún er komin med svona litla, sæta, harda kúlu! Og Brynjar náttúrlega byrjadi ad suda! Segi svona... Hljómar miklu betur en ad ég hafi alveg ordid sjúk. Ég kem miklu "tøffadri" út;) Já og svo langadi mig ad bidja ykkur um ad skrifa nidur heimilisføngin ykkar, fyrir bodskortin í brúdkaupid, á saumaklutinn. Fyrst ad ég næ ekki ad blogga, getur thá einhver af ykkur tekid af skarid og thá geta hinar commentad med sínar upplýsingar? Tusind tak. Já, og svo ætla ég ad bidja ykkur um ad plana ekki thessa útilegu 27. júlí, thá verd ég alveg brjálud! Crazy brjálud! En thvi midur kemst ég líklega ekki med...

En annars er thad ad frétta ad ástmadurinn var heima um helgina og nádum vid ad kaupa eitthad af húsgøgnum í íbúdina. Hillur og fataskáp og fleira. Fataskápurinn var semsagt keyptur í Ikea, sem thýdir thad ad hann er allur í fløtum pøkkum og madur tharf ad setja hann saman frá a til ø. Ég er semsagt búin ad thví, mega stolt! En ég vil meina thad ad minn kvóti sé núna búinn. Búin ad flytja úr tveimur íbúdum og inn í thridju á tveimur døgum, bera allt draslid inn og út og upp og nidur stiga, setja saman milljón og thrjú húsgøgn og mér finnst thetta bara komid gott. Næst thegar vid flytjum thá ætla ég ekki ad lyfta litla putta! Thad verda flutningamenn fengnir í thetta. "I´ve paid my dues".

En svo er von á ástkærri módur minni á føstudaginn og ætlum vid ad hafa thad huggulegt saman, mædgurnar! Ástmadurinn kemur svo á laugardagskvøldid og ég fæ ad hafa hann hjá mér í fimm daga, jei! Madur er gladur med thad sem madur fær! Já, svo er von á yfirgæsaranum henni Védísi minni frá Lundúnum thann 22. mars og fékk ég ferdaáætlun og plan sent í pósti. Fæ ad hafa hana í fjóra daga. Svo ætlum vid hjónaleysin ad halda upp á afmælid okkar fyrstu helgina í apríl og fara til Madrídar og hafa thad huggulegt, snæda med Bryndísi og Fran etc.

Já, vid eigum árs afmæli 1. apríl, thad er ekki aprílgabb. Já, og thad er megafyndid ad vid séum ad fara ad gifta okkur eftir svona stuttan tíma, I get it! En svona er thetta bara. Negla gæjann á medan madur getur. Svo klippir madur sig bara stutt og fitnar daginn eftir brúdkaup, hahah! Thokkalega keypti Brynjar køttinn í sekknum thar!

Jæja, ég tharf ad fara ad gera eitthad af mér. Trítla nidur á Nørrebrogade og fer ad "kaste med brosten". Sama og venjulega.

Hils, Rakel.


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.02.2007 15:44:55 / rakels

"...det er bare konge.."

 

 Jæja, ég vil nú byrja á thví ad segja takk vid ykkur, sætu stelpur... Thad er aldeilis trúin á manni.

 En thetta heppnadist nú líka bara svona vel, flutningurinn thad er ad segja. Ég flaug yfir til Parísar á midvikudagskvøldinu, vid fengum sendibílinn á fimmtudagsmorgninum og vorum búin ad flytja búslódina hans Brynjars ofan af 5. hæd á hádegi. Ég er ekki frá thví ad ég hafi misst thrjú kíló vid hlaupin upp og nidur stigana í 4 tíma. Løgdum svo af stad og vorum komin til Sorø 14 tímum sídar. Løgdum okkur í fimm tíma og héldum svo áfram morguninn eftir, keyrdum til Køben og vorum búin ad flytja bádar búslódir upp á 3. hæd á Schubertsvej kl 19. Thad var alveg dejligt. Thurftum reyndar ad keyra bílinn tilbaka til Parísar... Thad voru adrir 13 tímar á laugardeginum.

Las einhvers stadar ad thad væru nokkrir svona milestones sem thú thyrftir ad vera búinn ad ná ádur en thú giftir thig. Medal annars thad ad ná ad fara í roadtrip med kærastanum án thess ad drepa hvort annad og thvíumlíkt. Vid klárudum thad án thess ad kyrkja hvort annad.

Svo er nú í lagi ad segja frá thví ad thad var verid ad gera Brynjar Ørn ad flugstjóra. Ég er ofsalega stolt kona. Hann er svo helvíti klár, kallinn! Thannig ad hann verdur í Dublin næstu 2 vikur í training. Svo fer ég yfir til Dublin á føstudeginum vegna thess ad ég á ammmmli og ætla ad fá ad vera med tjallanum yfir helgina. Held ég fái sushi ad borda...

Annars er mikil gledi med íbúdina. Er ad koma okkur smám saman fyrir... Thurfum reyndar ad kaupa eitthvad af húsgøgnum og fíneríi og er alls ekki gott fyrir Brynjar ad leyfa mér ad vera hérna einni med kreditkortinu... Thad er alltof mikid af fíneríi hérna og skólinn alltof central stadsettur og stutt frá øllu fíneríinu.

Jæja, er ad fara ad hitta Gumma og frú á kaffihúsi... Zirop kannski, svona til ad bregda út af vananum. Ejú!

R.

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

05.02.2007 09:40:46 / rakels

nyheder

Jæja.

 Nú eru allir ordnir sundgedveikir á mér. Ég tharf ad vera duglegri ad skrifa á síduna.

 Fréttir:

 Ég kláradi próf 10. janúar og kom heim til Ìslands eftir thad. 3 vikur í burtu frá mínum ástkæra… Sem er vidbjódur og allt of langur tími án hans. En thad var mikid ad gera hjá honum í vinnu og ég nennti ekki ad hanga í thrjár vikur thannig ad ég fékk ad vinna hjá pabba thennan tíma sem ég var heima. Thad var líka bara svona fínt.

Gerdi svo sem ekki margt á medan adrir klárudu B.Sc próf í vidskiptafrædi (Hildur og Halldór), M.A próf í stjórnun (Katrín Døgg), klárudu eitt stykki pløtu (Védís) etc. Stolt af øllum mínum vinum;)

31.janúar var gódur dagur thar sem ég fékk út úr prófinu og thad gekk líka svona glimrandi. Brynki átti gódan leik thennan dag líka og er ekki annad hægt en ad vera endalaust montinn af thessum manni.

Brúdkaup er víst ekki í nema tæplega 6 mánada fjarlægd og er svona smám saman verid ad dytta ad theim plønum. Spændende…

Já, og svo er ég komin í skóla inni í Køben. Flutt úr sveitinni yfir í menninguna. Skólinn er í hjarta borgarinnar, eda á Pustervig og tekur thad mig ekki nema 4 mínútur ad ganga nidur ad Grønnegade í Pure Shop, Magelleriet og Rue Verte. Já, ég er búin ad taka tímann.

Svo erum vid ad flytja inn í nýju íbúdina okkar núna í lok vikunnar, Schubertsvej 13! Vei Vei Vei!

Ég flýg yfir til Parísar á midvikudaginn og keyrum vid svo frá París á fimmtudeginum, komum vid í Sorø og keyrum til Køben í nýja heimilid okkar… Tekur ekki nema svona 15 tíma ad keyra frá París. PeanutsJ Thá kvedur madur París í bili, búfrigginhú!

 En lífid leikur vid mig og okkur og ég veit ekki hvad væri hægt ad bidja um meira…

 Lofa ad vera duglegri ad skrifa.

 Rocky xxx.


» 8 hafa sagt sína skoðun

19.12.2006 10:01:15 / rakels

Langt sídan ég hef skrifad...

Jæja. Thá er ég búin med thetta pleis í bili. Fer til Parísar í dag og komum vid svo saman heim á morgun til Íslands. Mmmm, hvít hrein rúmføt, hamborgarhryggurinn hennar mømmu, hálsakotid á flugmanninum, jólakisi minn, fangid á pabba mínum og mømmulykt... Ásamt ødru.

Niiiiiiiiiice.

Já, og svo finn ég ekki sim kortid mitt. Verd ørugglega med gamla númerid mitt thá. Audvelt ad muna thad 822-2280

Rakel.


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.11.2006 15:28:08 / rakels

Jótar. Hvad er hægt ad gera í thessu?

Ég var ad vinna á veitingahúsi hérna í nokkra mánudi á vorønn. Svolítil fjølskyldustemmning tharna og margir fastakúnnar. Thad var sérstaklega ein fjølskylda sem sótti stadinn oft og høfdu gaman af thví ad spjalla vid mig. Fannst thad voda skemmtilegt ad ég væri íslensk thar sem thau áttu íslenska tengdadóttur sem bjó í Køben. Allavega… Thau áttu svo átta ára strák sem kom oftast med theim ad borda. Hann var vodalega rædinn og fannst gaman ad spjalla. Skemmtilegur strákur.

 

 



Nema eitt skiptid thegar ég var ad vinna koma thau inn og allt er vid thad sama thegar strákurinn kemur upp ad mér. Hann byrjar eitthvad ad spjalla og segir svo feimnislega:

 

 



”Ummm, jeg har lige et spørgsmål hvis det er ok?”

”Ja, selvfølgelig. Hvad er det du vil spørge om?”

”Kommer du fra Jylland?”

”Uh, nej. Hvorfor?”

”Nåh, bare fordi du snakker sådan lidt mærkeligt!”

 

 



Ég útskýrdi sídan fyrir honum ad nei, ég væri ekki frá Jótlandi heldur frá Íslandi. En greinilega gæti ég verid dønsk… Bara Jóti! Og hvad segir thad um greyid bændurna á Jòtlandi? Thetta gæti alveg eins verid útlendingar, their tala svo ”mærkelig”!

 

 



Árný mín og Ingibjørg, drífid ykkur í sidmenninguna. Thetta er náttúrulega ekki hægt. Fyrir utan thad ad thid séud útlendingar ad thá lærid thid jóska dønsku og erud bara basically screwed!

 

 



Ég nennti ekki ad vera ad bera eitthvad saman. Mér finnst thetta alveg nóg.

 

 



Eníhú. Ástmadurinn í Dublin á fundum og eitthvad. Ég er ad lesa klíníska næringarfrædi og anatómíu. Steinununnarrassgatid átti afmæli á thridjudaginn og er núna úti í Antwerpen hjá sínum ástmanni. Hildur bara hress og Védís á fullu ad æfa med Seth fyrir showid sitt… Allir á fullu í sínu en mig vantar reyndar ad heyra í Sjønu. Hringi bara í thig núna, góda.

 

 



Ekki enn komid á hreint hvernig skipulag um jólin verdur. Jól í París eda á Íslandi. ”Hvad thad verdur enginn veit…”

 

 



Rakel.

 

 




» 6 hafa sagt sína skoðun

09.11.2006 17:33:33 / rakels

Danir vs. Frakkar

 

Landid:

 

Danmørk – Thad er flatt landslag hér og gott ad hjóla. Thad er grænt og vorin og sumrin eru yndisleg hér. Thad rignir reyndar frekar mikid hérna og á veturna er manni kalt sem er ekki gott fyrir kuldaskræfu eins og mig.

Frakkland – Fallegt fallegt fallegt. Grænt úti í sveit og stutt ad fara í Champagne héradid til ad fá sér ad súpa ef madur er thyrstur;)

 Málid:

Danska – Ljótt mál. Óged í alvøru! Ef ég væri karlmadur og kynntist konu sem væri dønsk myndi ég alveg hugsa mig tvisvar um. Ad hlusta á danska kvenmenn tala… Ugh!

 Franska – Falleg en ótholandi. Erfitt ad bera ordin fram, thad er ekkert borid fram eins og thad er skrifad og mér finnst erfitt ad segja ”rrrrrrrrrr”!

Menningin:

 

Danir – Eru stoltir af Magasin og Illum og konungsveldinu sínu og lesa Se og hør til ad fylgjast med konungsslúdrinu. Fara med plastpoka í vasanum ad versla svo their spari sér tíkall og skoda alla Netto og Superbrugsen bæklinga til ad finna bestu dílana. Labba jafnvel búda á milli vegna thess ad kjúklingurinn er á tilbodi thessa helgina í Fakta en mjólkin er ódýrari í Nettó. Theirra eigin tími er greinilega ekki mikils virdi, midad vid thann tíma sem their nota til ad spara sér pening. Their eru ótholandi nískir á vatn og hita og rafmagn og minna thig á ad thú skuldar theim krónu sídan í sídustu viku.

Frakkar – Extravagant en hafa kannski ekki alltaf efni á thví. Thad thykir betra ad vera flott klæddur med Louis Vuitton tøskuna á handleggnum í Fendi skóm. Húsnædid skiptir kannski ekki svo miklu máli, thad er allavega mikilvægara ad vera med haute couture gæjann á hreinu en ad vera med mannsæmandi klósett. Ég elska samt Frakkland. Ég elska París og stemmninguna thar. Saga borgarinnar er heillandi og borgin hefur upp á svo margt ad bjóda. Fjølbreytt mannlíf, listamenn á gøtum úti ad sýna listir sínar og thad er ekkert betra, fallegra eda rómantískara ad labba um borgina med sínum dýrdarmanni ad drekka í sig borgina í fyllstu merkingu ordsins.

Fólkid:

Danir – Kaldir og nokkud hrokafullir, held samt ad their geri sér ekki grein fyrir thví. Thad thykir tøff ad vera arty í Danmørku og thekkja rétta fólkid. Svo eru their med minnimáttarkennd gagnvart Íslendingum. Kunna ekki ad tala ensku og ef their kunna brot af tungumálinu bera their málid fram eins og their séu holgóma. Ógedslegt ad hlusta á danska ensku.

Frakkar – Kaldir og hrokafullir, their VITA af thví og reyna sitt besta til ad vera eins hrokafullir og their geta. Thú ert ekki Frakki nema ad vera snooty! Latir, snobbadir og thad er fýla af theim. Blanda af svita og ostafýlu.

Kunna takmarkada ensku og thad virkar yfirleitt betur ad tala Íslensku vid thá! THÁ erum vid ad tala saman!!!

 

 

 

Umferdarmenningin:

Danmørk – Vegfarendur hafa alltaf forgang. Ef bíll nálgast gangbraut en sér vegfarenda í fimm metra fjarlægd frá brautinni, hægir hann yfirleitt á sér og stoppar svo til ad hleypa thér yfir! Thad er cool!

 Frakkland – Hér á kenning Charles Darwin vel vid ”Survival of the fittest”.

Reglurnar eru: Thad eru engar reglur! Ef bílstjóri sér vegfarenda í fimm sentímetra fjarlægd frá gangbraut thá gefur hann yfirleitt í til ad thurfa ekki ad stoppa fyrir thér. Gott ef their gefa ekki bara í til ad reyna ad negla thig nidur med bílhurdinni… Tíu stig!

 

Thjónustulundin:

Álíka ømurleg í bádum løndum. Thad var talad um thad ad loka Zara í Kaupmannahøfn vegna lélegrar sølu. Lágar sølutølur átti víst ad rekja til lélegrar thjónustulundar í búdinni! Halló, thad er engin thjónusta í Zara yfirhøfud, vid erum ad tala um thjónustulund undir frostmarki, hún er greinilega svona slæm.

Frakkar yppa bara øxlum ef thig vantar adstod eda tharft ad kvarta yfir einhverju og segja: C´est no possiblé eda It´s not possible eda einhvern fjandann til ad gera thig enn gedveikari og snúa svo baki í thig og láta eins og thú sért ekki til!

Samgøngur:

Danmørk – Kastrup flugvøllur er ótholandi en tiltølulega stutt í thær áttir sem ég fer í.

Frakkland – Charles De Gaulle flugvøllur er engu skárri og midad vid thjónustulundina eru hlutirnir ekkert ad gerast neitt ædislega hratt á thessum blessada velli. En hægt ad taka flug og lest til annarra landa í Evrópu á litlum sem engum tíma. Brilliant!

En lestarstødvar í París eru ótholandi. Ótholandi!

 

Og hvar er betra ad vera? Madur hlýtur ad spyrja sig...

Gaman ad bera svona saman. Kannski ég prófi næst Sjáland og Jótland eda Íslendinga og Englendinga.

 

r.


» 4 hafa sagt sína skoðun

31.10.2006 17:23:52 / rakels

The importance of being earnest...

 Bók sem ég las í framhaldsskóla... Hildur mín, thú kannast vid hana! Í theirri bók var mikilvægt ad heita Earnest. Thad thótti ekki fínt ad heita Jack eda John. En ennfremur var mikilvægt ad VERA earnest. Eda honest. Og thá sérstaklega vid sjálfan sig. Hildur mín... thú átt vid vandamál ad strída. Thú ert reyndar ekki ein um thad ad glíma vid thad vandamál heldur deili ég thessum sjúkleika med thér, Heida Adalsteins gerir thad víst líka en thangad til nýlega hélt ég ad vid værum einar um thad... Thad er ad segja, thessi sjúkleiki ad PLOKKA Á SÉR AUGNAHÁRIN!

Thad er grein í nýjustu UK útgáfu Marie Claire thar sem verid er ad fara yfir bestu vørur innan snyrtivarageirans um thessar mundir. Ég er svona casually ad lesa yfir thetta røfl thegar ég rek augun í thetta:

"Best eye make up remover:

Dermalogica Soothing Eye Make Up Remover.

This one does it all! Removes every trace of make up! Hands down, the best eye make up cleanser out there. Even FOR YOU EYELASH PLUCKERS OUT THERE!"

Thid getid ímyndad ykkur gledi mína thegar ég sá thetta! Thetta ER VÍST TIL! Og ég er ekki ruglud! Thetta er maskara andskotinn (sorry mamma) sem er ad gera manni thetta. Hann tredur sér ofan í rótina og veldur thar einhverju partýi sem mann vardar nákvæmlega ekkert um en á greinilega ekki nógu gódan hreinsi til ad thrífa thetta rusl af! Ég ætla ad kaupa 130 svona gaura, yes sir!

Verst ad thetta er ekki til heima á Íslandi, Hildur mín. Allt í gódu, ég kaupi thennan gaur bara fyrir thig.

Thad borgar sig víst ad lesa stelpublød!

r.


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6